Thelma
Wednesday, August 29, 2012
The Herschel - hinar fullkomnu skólatöskur
Ég rakst á þessar töskur í Urban Outfitters í Svíþjóð...fullkomnar skólatöskur. Með sér hólfi fyrir tölvurnar, stuðningur fyrir bakið og ætlaðrar á bakið, ég er semsagt búin að fá ógeð af hliðar skólatöskunum þar sem maður dröslar sér í skólann hálf haltur af þunga. Það hefur hinsvegar verið erfitt að finna fallegar skólatöskur. Þessar voru hinsvegar ekki gefins þannig að ég ákvað að salta það aðeins...En verðið er alls ekki óviðráðanlegt.
Thursday, August 23, 2012
The XX - Coexist
Jæja.. long time no see! – afsakið HLÉ hefur verið á alltof lengi í mínum málum svo ég ákvað að henda þessu aftur af stað og koma með nýtt og djúsí stuff handa ykkur! :)
Hérna er það allra nýjasta, og er í raun ekki orðið nýjasta því platan þeirra Coexist kemur út í september ... svo við bíðum SPENNT! minningarnar af síðustu plötu eru yfirgnæfandi góðar svo ég efast ekki um að þessi geri mér lífið gott líka. :)
Óþarfi að kynna
ENJOY
ég svitna af spenningi!
M

Monday, August 13, 2012
Memaxi
Ég hef því upplifað að eiga ömmu og afa sem þjást af minnisleysi og búið heima hjá sér. Ég hef séð hvað það getur tekið á eina fjölskyldu að annast þá einstaklinga og hvað það er sem þarf að skipuleggja svo að allir geti fylgst með planinu og því unnið betur sem ein heild um að þeim líði sem best heima hjá sér.
Ég er heppin að það eru ákveðnir snillingar í minni fjölskyldu sem tókst að greina vandann og reyna að vinna lausn á honum svo að aðrir gætu átt betra líf heima hjá sér þó að mínir aðstandendur væru fallnir frá.
„Memaxi kerfið var búið til af einstaklingum sem allir hafa reynslu af því að annast heilabilaða aðstandendur. Allir áttu það sameiginlegt að hafa leitað að góðri, einfaldri lausn til þess að koma á skipulagi og góðum boðleiðum án árangurs. Því varð til hópur hjúkrunarfræðinga, forritara, hönnuða og viðskiptafræðinga sem tók höndum saman að búa til kerfi sem myndi gagnast öðrum í sömu sporum. Memaxi varð lausnin og hjálpar kerfið ekki eingöngu þeim með Alzheimers heldur öllum þeim sem þurfa á minnisaðstoð að halda, s.s. þeim sem eru ekki með skammtímaminni, þeim sem eru einhverfir og þurfa á mikilli reglu að halda og öðrum.“

Subscribe to:
Posts (Atom)