Ég kynnist
Acne fötunum í sumar og gjörsamlega féll kylliflöt fyrir þeim. Þau eru í algjöru uppáhaldi. Vörurnar eru á 60% afslætti núna. Ég er búin að liggja á síðunni þeirra í allan vetur, skoða aftur og aftur og aftur. Ætlaði svona líka að vera undirbúin fyrir útsölurnar...en því miður á ég engan pening fyrir svona munað núna. Meira að segja kjóllinn sem ég var búin að ákveða að vera í brúðkaupi næsta sumar er búin! Ef þið eigið vini eða kunningja í Svíþjóð og smá pening aflögu mæli ég með því að þið fáið að senda nokkrar flíkur á þá og þeir áframsenda til ykkar.
Thelma
No comments:
Post a Comment