Friday, April 20, 2012

Hlín Reykdal og Göngum saman

Hlín Reykdal fatahönnuður hefur hannað fallegt armband fyrir styrktarfélagið Göngum saman, sem styrkir rannsóknir á brjóstakrabbameini, og er það einnig í tilefni 5 ára afmæli félagsins.
Við Thelma skelltum okkur í föstudags-sólskins-bæjarrölt í blíðunni í dag og fórum inní allar helstu verslanirnar að láta okkur dreyma :)

Kíktum á lokasprettinum inn í Kiosk og gat ég ekki staðist það að fjárfesta í einu bleiku armbandi.
Það setti strax sumarið af stað hjá mér - er ekki frá því að maður verður allavega einum tóni brúnni með það á sér ;)
Æðislegt verkefni hjá þeim!

Gleðilegan föstudag ljúflingar*

M









Margrét





No comments:

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...