En þar sem að flíkurnar sem ég þarf alltaf að finnast fallegastar kosta yfirleitt handlegg og nýra eru þær fjær raunhæfum væntingum en er í lagi að láta sér dreyma...
Ég má bara ekki labba framhjá DAY BIRGER ET MIKKELSEN búðinni (þau eru líka viljandi með heilann glervegg svo maður sjái örugglega inn í búð þegar maður labbar framhjá!).
En þau eru með æðislegar flíkur, ég gæti fyllt herbergið mitt af þeim. Svo klassískar, falleg og elegant snið, passar við allt, og mjög jarðbundin helst mest til í svörtu, gráu og hvítu. Því sem mér líðust best í. :)
Ég varð dáleidd þegar ég sá þessar tvær flíkur, á broti úr sekúndu..(tvær efstu) svo þegar heim var komið kíkti ég á síðuna þeirra www.day.dk/eu/en, og fann ég nokkrar til viðbótar.
Ég vildi endilega deila þeim með ykkur svo ég væri ekki ein í þessum draumórum.
voila!
M
2 comments:
ELSKA Day birger et Mikkelsen!
Ohh I KNOW! Þeir eru alveg, ég leyfi mér að nota þetta orð núna,;) GUÐDÓMLEGIR!!
ætla að gera mér ferð útí búð að máta kjólinn amk. ;)
Post a Comment