Hef verið smá hæg í blogginu...en fyrir því er ágætis ástæða. Ég er nefnilega að gera allt ready fyrir brottflutninga. Kemur fáum eflaust á óvart sem þekkja mig að leiðinni sé haldið til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Gautaborgar í skiptinám, í æðislegum skóla þar úti. Er svo spennt að ég ræð mér varla, en líka með smá hnút í maganum yfir „hvað í anskotanum er ég búin að koma mér útí enn eina ferðina“.
Ég er allavegna byrjuð að pakka og búin að koma fyrir hárbursta sem er eitthvað sem ég gleymi ALLTAF!
Kærar kveðjur,
Thelma
No comments:
Post a Comment