Ég átti leið framhjá
Cos um daginn og álpaðist inn...verðin á fötunum voru heldur dýr og ég staldraði lítt við þar. Það sem kom mér á óvart var hversu fallega skartgripi þeir voru með, látlaust en mjög fallegt og merkilega eigulegt. Ekki svona glingurlegt eins og mér finnst skart í svona búðum oft verða. Ég finn ekki allt á netinu sem mér fannst fallegt, en ef þið eigið leið hjá mæli ég með því að skoða þar.
Thelma
No comments:
Post a Comment