Wednesday, February 15, 2012

Nilfisk ryksugur

Ég veit ekki alveg hvernig ég fór að spá í þessu (jú ég reyndar veit það, var að skoða kitchenaid vélar og var þá hugsað til gömlu ryksugunnar okkar) en afhverju og hvar týndist fagurfræðin í hlutum? Kannski er það bara ég sem elska 50'-60' svona mikið og vil helst eignast allt í þeim stíl en hver man ekki eftir gömlu Nilfisk ryksugunum?  


Svo fallegar, næstum stofudjásn.  Ég man reyndar alveg að það var óþolandi að draga þær á eftir sér um heimilið. En ég vil að þessar vélar verði endurgerðar í þessari útgáfu, þá pannt! Ég reyndar gæti ekki hugsað mér aðra vél en Nilfisk ryksugu, en það er önnur saga :)

Og nei þessar sem ég fann eru bara ekki alveg næginlega nálægt því, það vanntar sjarmann.




Thelma





No comments:

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...