Friday, March 16, 2012

Jeffrey Campbell

Ég er ein af þeim sem gjörsamlega skil ekki þetta Jeffrey Campbell æði. Mér finnst flestir skórnir alveg hrikalega ljótir (sorry með mig ég ræð mér bara ekki). Eins og það sé ekki nægilega erfitt að labba á þessum skóm...
...þá sá ég stelpu labba í þessum skóm (neðri mynd) niður Bankastræti og það er með því fyndnasta sem ég hef séð. Næstum því ómögulegt en hún var heppin að vera með fylgdarmann sem hjálpaði henni niður. Ég skil ekki að fólk kaupi sér þessa skó, talandi um að bjóða hættunni heim, nei þeir eru meira að kaupa hættuna heim. Þeir eiga bara heima í einhverju Lady Gaga myndbandi.


Njótið helgarinnar, over and out.

Thelma

4 comments:

Vala said...

haha ég er svo sammála, margir mjög flottir skór frá honum en það er sérstaklega búið að gera týpunni á fyrstu myndinni aðeins of hátt undir höfði

Thelma Hrund said...

Heyr heyr Vala. ALjgörlega til margir flottir, ég skil ekki afhverju allir eru að trillast yfir þessum. Þessum skóm á eftir að vera minnst eins og Buffaló mistökunum sem svo margir gegnu í ;)

Vala said...

já nklv sem ég hugsaði, mig grunar að margir séu þegar farnir að horfa á sína með smá efa. En held við ættum að hætta þessu nöldri og vera ánægðar með mismunandi smekk manna :)

Thelma Hrund said...

Já það er rétt. Ég stóðst bara ekki mátið með þá skó. Annars set ég nú oftast bara inn eitthvað sem ég er hrifin af.
En gaman að sjá að þú fylgist með.

Kv. Thelma

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...