Wednesday, March 6, 2013

Stockholm furniture fari vol 2 - Hay

Þessi bás stóð algjörlega uppúr á Stockholm furniture fair en hann er frá hinu ótrúlega fallega merki Hay sem er danskt. Básinn sjálfur var óvenjulegur með viðarsúlum sem afmarkaði rýmið. Sniðugt, því ég var löngu búin að spotta hann og freistandi að skoða. 


Ég var mjög hrifin af glösunnum sem eru gylt í botninn...svo ömmulegt eitthvað.



Handklæðin frá þeim eru líka alveg trillt. Ég vissi ekki að þeir væru að gera þau og sé heldur ekki að þau séu komin í sölu á netinu þannig að þau eru eflaust væntanleg og vonandi á viðráðanlegu verði því ég er meira en lítið til í þau.

Thelma

No comments:

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...