Þessi glös eftir Karl Lagerfeld í samstarfi við
Orrefors fara alveg með mig. Eru í öðru hverju (nei meina ÖLLUM) híbýlablöðum. Þvílíkur viðbjóður sem þau eru. Ég gerði mér meira að segja ferð til að skoða þau og halda á og þau urðu bara ekkert skárri. Snillingurinn sem hann er í að hanna föt, þetta er bara kannski ekki hans svið. Einhversstaðar verður fólk víst að fá að gera mistök. Ég er voðalega viðkvæm fyrir þessu kassaformi. Þótti það gríðarlega töff í 5 sek. árið 2007 en er með algjört ofnæmi fyrir því núna (minna mig á glösin sem fólkið í Gossip girl þáttunum eru alltaf með). Þau væri kannski...en bara kannski örlítið skárri ef ekki væri fyrir þessar glerglasamottur. Sorry ungfrú neikvæð aðeins að fá að tjá sig hérna ;)
(Hann getur ekki einu sinni horft á þau sjálfur og hvílíkur fyrirlitningarsvipur!)
Thelma
No comments:
Post a Comment