Thursday, March 7, 2013

Focus de luxe - Gense - hnífapör

Ég á þessi fínu og fallegu Focus de luxe hnífapör sem eru frá sænska merkinu Gense. Í dag þegar ég sat hönnunarsögutíma hóf kennarinn að ræða þau mér til mikillar gleði, sagði þau vera ein bestu hnífapör sem framleidd hefðu verið, enda þola þau ansi mikið. Hann fór líka í gengum það afhverju þau eru svona æðisleg og vel hönnuð...
 Tindarnir á gafflinum eru svona stuttir því þá nær maður meiri sósu og meðlæti uppá gaffalinn, það væri óþarfi að hrúa uppá tindana enda væri gaffall ekki ætlaður til að stinga ofaní kok heldur aðeins til að færa mat á milli.

Hnífurinn er svona stuttur því maður notar ekki meira af hníf þegar maður sker, því væri algjörlega óþarfi að hafa kílómeter langan hníf, þetta er allt sem þarf.

Skeiðin er hugsuð til að passa akkúrat inní munn, ekki svo maður þurfi að færa eina kynninga til til að koma skeiðinni inn fyrir.
Vonandi höfðuð þið gaman að þessu.

Thelma

3 comments:

Anonymous said...

Ég er með þessi hnífapör á heilanum! Keyptir þú þessi hnífapör í Svíþjóð, ef svo er hvar? Og mannstu hvað þau kostuðu?

Bestu kveðjur!

Thelma Hrund said...

Halló.
Já ég keypti það í Stockholmi - búð á Flemminggötunni fyrir 2 árum síðan. Ég man að það var þá á milli 16.000 og 18.000 á tilboði. Ég sé svo eftir að hafa ekki keypt fleiri (á fyrir 4ra) því þau virðast alltaf vera á um 1200-1500 sek núna sem er frá 25.000 til 30.000. Ég hef hinsvegar ekki gefið upp alla von, ætla að tékka á Gense outletti hvort þau séu til þar.

Ef þú ert heima á Íslandi voru þau til í Aurum á tilboði og þá var verðið ansi hagstætt, eða undir 20.000. Veit ekki hvort þau séu til en í dag þar.

Kv Thelma

Anonymous said...

Ég elska þessi hnífapör, ég hef sko látið mig dreyma um þau í langan tíma -erla

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...