- Þægilegir (verður að vera hægt að vinna í þeim í 12 tíma + og bjúgur verður að rúmast fyrir)
- Flatbotna, en samt með smá ogguponsu hækkun svo maður sé ekki að drepast í hnjánum
- Svartir
- Leður (eða pleður), slétt (ekki rúskin)
- Má ekki vera neitt auka drasl á, svo sem slaufa, glimmer eða mismunandi efni
- Og það erfiðasta, verða að vera til í st. 41-42.
Núna vandast valið. Ég flyt út á mánudegi og byrja að vinna á þriðjudegi þannig að það gefst enginn tími í að reyna að leita að þeim úti. Ég er búin að gera ansi góða leit á Íslandi og ég verð að sýna ykkur það næsta sem ég kemst niðurstöðunni en það eru Gabor skór sem fást í Steinari Waage. Drepi mig ekki allir heilagir, þeir eru svo hrillilega ljótir og kosta 20.000 kr.
Thelma - vandræðagemsi
6 comments:
20 þús er ansi mikið fyrir "ljóta" skó! Ég myndi bíða aðeins lengur :)
Íris
Oh svona vinnuskó-leit er eitt það erfiðasta. Máttu ekki vera í Toms? Þeir eru svo hrikalega þægilegir!
Já ég bara veit ekki hvað ég á að gera ef ég bíð lengur...í hverju á ég þá að vera fyrstu dagana?
Ég þekki ekki þetta Toms, hvar fást þeir?
Eru Toms ekki aðeins of kasjúal?
En já Steinar Waage skórnir eru ekki fallegir, en þeir eru þægilegir.... Svo er auðvitað alltaf Hagkaup ;-) haha
Þú átt að geta pantað þá á netinu en jú þeir eru nefnilega ekkert mjög fínir þó þeir séu mjög comfy!
Haha Ástríður, ég tók hring í Hagkaup...just to make shore!
Ég held ég sé komin á sporið, eitt stykki vagabond skór. Ég skal blogga um það ef það virkar :)
Það eru „frekar“ strangar reglur á þessu þannig að það er betra að vera safe og í fínum skóm heldur en að vera tekinn á teppið. Takk samt fyrir ábenginguna.
Post a Comment